
2 milljónum króna til þessa mikilvæga verkefnis. Fénu verður annarsvegar varið í breytingar á forsölum og framhlið hússins og hinsvegar í að ýta starfseminni úr vör.
Stefnt er að því að starfsemi hefjist í september og verður reglulega boðið uppá fjölbreytt úrval kvikmynda, gamalla og nýrra, úr öllum áttum og við hæfi allra aldurshópa. Í Regnboganum verður aðsetur kvikmyndahátíða og sérstök áhersla verður lögð á að kynna börnum og unglingum kvikmyndasöguna, innlenda og erlenda, með sérstökum skólasýningum. Stefnt er að því að þær hefjist á næsta ári. Þarna verður einnig að finna kaffihús og verslun með mynddiska, bækur og annað kvikmyndatengt efni. Verður Regnboginn því áfangastaður allra þeirra sem vilja dvelja í heimi kvikmyndanna til lengri eða skemmri tíma.
Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið yfir frá síðasta ári. Sérstakt félag um reksturinn verður stofnað á næstu dögum. Það verður í eigu fagfélaga kvikmyndagerðar, dreifingaraðila kvikmynda, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og nýstofnaðra samtaka kvikmyndaunnenda. Auglýst verður eftir framkvæmdastjóra hins nýja félags nú um helgina.Hugmyndin er að Regnboginn bíótek verði samvinnuvettvangur sem flestra þeirra sem koma að kvikmyndamálum í landinu, þar með talið dreifingaraðila kvikmynda, íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Kvikmyndasafns Íslands og kvikmyndahátíða ásamt Kvikmyndaskóla Íslands og annarra menntunaraðila á sviði kvikmynda. Markmiðið er að veita almenningi nýja þjónustu á sviði kvikmynda.
Alhliða kvikmyndamenningarmiðstöð hefur aldrei verið til hér á landi fyrr. Það er sannfæring aðstandenda verkefnisins að þetta verði ekki aðeins til að efla uppbyggingu í miðborginni, heldur einnig til að auka breiddina í menningarflóru Reykjavíkurborgar, borgarbúum og landsmönnum öllum til hagsbóta, auk þeirra tugþúsunda erlendra ferðamanna sem árlega heimsækja borgina.
______________________________________________________________________________________________________
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri undirbúningshópsins, Ásgrímur Sverrisson, í síma 861 9126. Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .