tkur__Alfre_Elasson_og_Loftleiir2.jpg

Fréttir

40.stk einna mínútu myndir á síðuna !

Þær eru að renna núna vikulega inn á síðuna allar einna mínútu myndirnar sem gerðar voru árið 2006 í tilefni af 40 ára afmæli félagsins !40_ara_afmaeli_poster
Nú þegar eru átta myndir komnar inn. Þær eru eftir Elvar Gunnarsson, Gunnar Karlsson, Ásgrím Sverrisson, Júlíus Kemp, Lárus Jónsson, Robert Douglas, Helga Sverrisson og Önnu Rögnvaldsdóttir!
"Nálgunarbann" eftir Önnu Rögnvaldsdóttir má sjá hérna á forsíðunni, niðri til hægri.
Hvern mánudag bætast við alltaf 1-2 myndir í safnið þar til 40.stk eru komin inn !
Endilega fylgist með. Þetta eru mjög fjölbreyttar myndir frá mörgu okkar færasta kvikmyndagerðarfólki.

 
 
Regnboginn - heimili kvikmyndanna
Undirbúningshópur um bíótek (cinematheque) í Regnboganum við Hverfisgötu fagnar ákvörðun borgarráðs um að veita alls 1seq_2007_regnboginn2 milljónum króna til þessa mikilvæga verkefnis. Fénu verður annarsvegar varið í breytingar á forsölum og framhlið hússins og hinsvegar í að ýta starfseminni úr vör.

Stefnt er að því að starfsemi hefjist í september og verður reglulega boðið uppá fjölbreytt úrval kvikmynda, gamalla og nýrra, úr öllum áttum og við hæfi allra aldurshópa. Í Regnboganum verður aðsetur kvikmyndahátíða og sérstök áhersla verður lögð á að kynna börnum og unglingum kvikmyndasöguna, innlenda og erlenda, með sérstökum skólasýningum. Stefnt er að því að þær hefjist á næsta ári. Þarna verður einnig að finna kaffihús og verslun með mynddiska, bækur og annað kvikmyndatengt efni. Verður Regnboginn því áfangastaður allra þeirra sem vilja dvelja í heimi kvikmyndanna til lengri eða skemmri tíma.

Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið yfir frá síðasta ári. Sérstakt félag um reksturinn verður stofnað á næstu dögum. Það verður í eigu fagfélaga kvikmyndagerðar, dreifingaraðila kvikmynda, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og nýstofnaðra samtaka kvikmyndaunnenda. Auglýst verður eftir framkvæmdastjóra hins nýja félags nú um helgina.
Nánar...
 
   

Straumar héðan og þaðan

Kvikmyndablogg

Kvikan Kvikan

Sigríður Pétursdóttir með fróðleiksmola, greinar, viðtöl og tilvísanir í áhugavert efni.

Ásgrímur Sverrisson Ásgrímur Sverrisson

Maðurinn á bakvið vefinn Iceland Cinema Now.

Ásgrímur Cinephile Ásgrímur Cinephile

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

icelandonscreen icelandonscreen

An outsider’s look at Icelandic film and television.

Roger Ebert á íslensku Roger Ebert á íslensku

Kvikmyndagagnrýni Roger Eberts. Þýðing: Hrannar Baldursson

Bíóbloggið Bíóbloggið

Hrannar Baldursson bloggar um bíómyndir.

Thorkell Ágúst Óttarsson Thorkell Ágúst Óttarsson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Haukur Már Helgason Haukur Már Helgason

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Sigurjón Baldur Hafsteinsson Sigurjón Baldur Hafsteinsson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Arnar Elísson Arnar Elísson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Poppoli Poppoli

Olaf de Fleur Jóhannesson. Leikstjóri/Framleiðandi.

Kvikmyndablogg Míu Kvikmyndablogg Míu

Krumma films ber enga ábyrgð á skoðunum Míu ...

Skuggalestin Skuggalestin

Misgáfulegar pælingar um kvikmyndir og aðra ómenningu.

Vera Sölvadóttir Vera Sölvadóttir

Kvikmyndagerðarkonan og helmingurinn af BB&BLAKE.

Deus Ex Cinema Deus Ex Cinema

Trúarstef í kvikmyndum.

Tjarnarbíó Tjarnarbíó

Áætlað er að opna nýtt og endurbætt húsnæði næsta vor.

Félag kvikmyndagerðamanna / The Icelandic Film Makers Association | P.O. Box 1652 | 121 Reykjavík | Iceland
Vefhönnun: Hugsa sér!

Komandi atburðir

<<  Júlí 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
262728293031 
"Nálgunarbann" eftir Önnu Rögnvaldsdóttir

Þetta er 1 af 40 einna mínútu myndum sem gerðar voru fyrir 40 ára afmæli FK, árið 2006. Frumsýningin var þann 9.nóvember í Listasafni Íslands.

Skráning á póstlista