fk4heim.jpg

Fréttir

VILTU SKAPA TÆKIFÆRI Í KVIKMYNDATENGDRI FERÐAÞJÓNUSTU ?


Þriðjudaginn 7. febrúar boðar Íslandsstofa til fundar um möguleg tækifæri ferðaþjónustuaðila í kvikmyndatengdri ferðaþjónustu.
Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica kl. 10-12.
Á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á stórum verkefnum í kvikmyndagerð hér á landi. Í sumum tilfellum er um að ræða stórmyndir sem vakið hafa athygli kvikmyndaáhugafólks víða um heim. Áhugavert er að skoða hvaða tækifæri þetta skapar fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki til aukins vöruframboðs.

Dagskrá:
• Joakim Lind, markaðssérfræðingur og einn eiganda almannatengslafyrirtækisins Cloudberry communication í Svíþjóð:
- Skammtíma- og langtímaáhrif framleiðslu og markaðssetningar kvikmynda
- Stieg Larsson þríleikurinn og áhrif á ímynd Svíþjóðar
- Áhrif kvikmyndanna um Wallander

• Harvey Edington, kvikmyndasérfræðingur hjá National Trust í Bretlandi:
- Hvernig kvikmyndagerð getur stuðlað að auknum heimsóknum á vissa tökustaði og aukið sögulegt gildi þeirra í leiðinni
National Trust hefur til umráða 200 sögufrægar byggingar og 970 km af strandlengju, auk rúmlega 2000 km2 landsvæðis, þar sem að meðaltali þrjú kvikmyndateymi eru að störfum á hverjum degi. Dæmi um kvikmyndir eru t.d. Pride and Prejudice, Harry Potter, The Dark Knight og Tomorrow Never Dies.

• Þór Kjartansson, kvikmyndaframleiðandi hjá Truenorth:
- Möguleg tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila í gegnum kvikmyndagerð á Íslandi
- Yfirlit yfir tökustaði á Íslandi

Fundarstjóri: Einar H. Tómasson – Film in Iceland
Skráning fer fram á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 511 4000.

Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Einar H. Tómasson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
 
AÐALFUNDUR FK 2012

Aðalfundur Félags Kvikmyndagerðarmanna
verður haldinn mánudaginn
13. febrúar 2012 í IÐNÓ við tjörnina í RVK kl. 20:00

Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
1. skýrsla stjórnar
2. endurskoðaðir reikningar félagsins
3. lagabreytingar ef einhverjar eru
4. kosning stjórnar
5. kosning endurskoðenda
6. önnur mál
 
 
EDDAN 2012 - SÝNINGAR - KJÖRGENGI - AÐILDARGJÖLD O.S.FRV.

Frestur til að skila inn verkum í Edduna er nú útrunninn og valnefndir hafa tekið til starfa. Helsta breyting frá síðasta ári er að 35% aukning varð á innsendum sjónvarpsverkum í ár, sjá nánar: http://eddan.is/?p=787

Tilkynnt verður um tilnefningar Eddunnar á blaðamannafundi í Bíó Paradís föstudaginn 3. febrúar og í kjölfarið verður opnað fyrir kosningu akademíumeðlima. 
Innsend verk verða sýnd eftir föngum, meðlimum að kostnaðarlausu, í Bíó Paradís og víðar, vikuna 10.-16. febrúar. Verðlaunaafhendingin sjálf er svo í Íslensku óperunni/Gamla bíói laugardaginn 18. febrúar.

Rétt er að árétta að eingöngu þeir sem greitt hafa aðildagjöld ÍKSA fyrir 3. febrúar eru kjörgengir í valinu á Eddunni 2012.

Greiðsluseðlar hafa verið sendir í heimabanka allra þeirra sem við gátum parað saman við kennitölu og þegar eru 152 búnir að greiða seðilinn og þar með komnir inn á kjörskrána, sjá: http://eddan.is/?page_id=6



Hins vegar eru alls 220 meðlimir sem við annað hvort höfum ekki getað parað saman við kennitölu eða netfang. Mikilvægt er að hafa hvort tveggja rétt: kennitöluna til að greiða aðildargjöldin og rétt netfang til að kjósa, enda hefur kosningin nú um nokkurt árabil verið rafræn.
Hér má nálgast lista yfir þá meðlimi sem okkur vantar upplýsingar um: http://eddan.is/?page_id=702.
Mig langar til að biðja ykkur, sem fáið þennan póst, að renna yfir listann og ef þið þekkið einhvern sem á honum er, þá megið þið endilega hnippa í viðkomandi og minna hann á að senda inn réttar upplýsingar á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
 
   
NORDISK PANORAMA UMSÓKNIR - FRESTUR 15.FEB

Frestur til að skila inn umsóknum á Nordisk Panorama - 5 Cities Film Festival rennur út þann 15. febrúar fyrir heimilda- og stuttmyndir framleiddar árið 2011. Frestur til að skila inn umsóknum fyrir verk framleidd 2012 rennur út 15. maí.
Nordisk Panorama – 5 Cities Film Festival, sem verður haldin dagana21. til 26. september 2012 í Oulu í Finnlandi, er ein helsta stutt- og heimildamyndahátíð Norðurlandanna. Hátíðin spannar jafnframt flest svið kvikmyndagerðar, s.s. þróun, fjármögnun og dreifingu, og fékk í fyrra hæfnismat sem fullgild hátíð til að tilnefna stuttmyndir til Óskarsverðlauna í sínum flokki. Stuttmyndin sem valin verður besta stuttmynd Norðurlanda á því möguleika á tilnefningu til eftirsóttustu verðlauna kvikmyndaiðnaðarins – hinum eina sanna Óskar.
Umsóknum skal skilað rafrænt og hægt er að fylla þær út hér.
Frekari upplýsingar má finna hér.
Heimasíða Nordisk Panorama

 
 
REYKJAVÍK SHORTS&DOCS - DEADLINE 1.MARS

Stutt-og heimildamyndahátíðin Reykjavík Shorts&Docs Festival verðurhaldin dagana 6.-9. maí 2012. Þetta er í 10. sinn sem kvikmyndahátíðin er haldin og af því tilefni verður hátíðin stærri og umfangsmeiri en nokkru sinni fyrr. Fólki af vettvangi sjónvarps- og kvikmynda verður boðið á hátíðina erlendis frá. Auk kvikmyndasýninga á stutt- og heimildamyndum verða pallborðsumræður, vinnusmiðjur og kvikmyndasamkeppni, ásamt fjölda annarra viðburða.
Það kostar 4.000 kr að senda inn hverja kvikmynd. Hægt er að senda inn kvikmyndir á hátíðina fram til 1. mars 2012.
Reykjavík Shorts&Docs Festival er alþjóðleg kvikmyndahátíð með áherslu á stutt- og heimildamyndir. Hægt er að senda inn stuttmyndir sem eru allt að 30 mínútur að lengd, hvort sem það eru leiknar kvikmyndir, teiknimyndir (e.animation) eða tilraunamyndir (e.experimental). Þá er tekið á móti heimildamyndum í hvaða lengd sem er. Þær kvikmyndir sem veljast á hátíðina verða að hafa verið framleiddar á síðustu tveimur árum (2010-2012).
Allar nánari upplýsingar veita Brynja Dögg Friðriksdóttir kynningarfulltrúi s: 845 8994 og Heather Millard stjórnandi Reykjavík Shorts&Docs Festival, s: 693 5698.
 
   

Síða 1 af 2

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Straumar héðan og þaðan

Kvikmyndablogg

Kvikan Kvikan

Sigríður Pétursdóttir með fróðleiksmola, greinar, viðtöl og tilvísanir í áhugavert efni.

Ásgrímur Sverrisson Ásgrímur Sverrisson

Maðurinn á bakvið vefinn Iceland Cinema Now.

Ásgrímur Cinephile Ásgrímur Cinephile

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

icelandonscreen icelandonscreen

An outsider’s look at Icelandic film and television.

Roger Ebert á íslensku Roger Ebert á íslensku

Kvikmyndagagnrýni Roger Eberts. Þýðing: Hrannar Baldursson

Bíóbloggið Bíóbloggið

Hrannar Baldursson bloggar um bíómyndir.

Thorkell Ágúst Óttarsson Thorkell Ágúst Óttarsson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Haukur Már Helgason Haukur Már Helgason

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Sigurjón Baldur Hafsteinsson Sigurjón Baldur Hafsteinsson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Arnar Elísson Arnar Elísson

A Cinephile Blog from Iceland Cinema Now

Poppoli Poppoli

Olaf de Fleur Jóhannesson. Leikstjóri/Framleiðandi.

Kvikmyndablogg Míu Kvikmyndablogg Míu

Krumma films ber enga ábyrgð á skoðunum Míu ...

Skuggalestin Skuggalestin

Misgáfulegar pælingar um kvikmyndir og aðra ómenningu.

Vera Sölvadóttir Vera Sölvadóttir

Kvikmyndagerðarkonan og helmingurinn af BB&BLAKE.

Deus Ex Cinema Deus Ex Cinema

Trúarstef í kvikmyndum.

Tjarnarbíó Tjarnarbíó

Áætlað er að opna nýtt og endurbætt húsnæði næsta vor.

Félag kvikmyndagerðamanna / The Icelandic Film Makers Association | Hverfisgata 54 | 101 Reykjavík | Iceland
Vefhönnun: Hugsa sér!

Komandi atburðir

<<  Febrúar 2012  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  4  5
  6  7  8  9101112
131415161719
20212223242526
272829    

 

Sérðu Rúnar frænda eftir Sam og Gunn
Þetta er 1 af 40 einna mínútu myndum sem gerðar voru fyrir 40 ára afmæli FK, árið 2006. Frumsýningin var þann 9.nóvember í Listasafni Íslands.

Skráning á póstlista